Luxe Seamless bra eru öðurvísi útgáfa af vinsælustu íþróttatopparnir okkar frá upphafi. Það sem gerir þá sérstaka er að þeir eru með þykka strappa sem leggjast ekki ofan á axlarvöðvann heldur rétt fyrir utan svo þeir valda minni vöðvabólgu en aðrir toppar. Þessir eru öðruvísi en ribbed að því leiti að þeir eru með punktum í efninu en ekki línum eins og ribbed.
Þessir toppar eru einstaklega þægilegir og henta í allskyns hreyfingu og auðvitað í daglegt amstur.
Margar konur hafa keypt þessa toppa hjá okkur og sagt að þær noti varla annað lengur.
Þessi útgáfa er “High Support” en ef þú vilt minni en samt þægilegan stuðning þá mælum við með að skoða “Medium Support” útgáfurnar af honum.
Þeir eru gerðir úr 55% Nylon, 40% Polyester og 5% Elastane.