NÝIR STAÐLAR Í ÍÞRÓTTASKÓM
GÆÐI. FJÖLHÆFNI. TÍMALEYSI.
Haze skórnir eru komnir til okkar eftir mikla eftirspurn og vinsældir út í hinum stóra heimi. Jákvæðni og ánægja einkennir umsagnir um skónna. Léttir, þægilegir, liprir og stöðugir. Skórnir henta í alla hreyfingu og eru einn af mest fjölhæfu skóm á markaðnum í dag. Sumir skór eru of stífir og sumir of mjúkir, Haze skórnir eru með góða blöndu af báðu. Stílhreinir skór sem henta flestum því þeir eru ekki of breiðir og ekki of grannir. Efnið sem umlykur fótinn andar vel og aðlagast að fætinum þínum. Skórinn styður vel við þig í öllu því sem þú gerir á æfingu.
Eiginleikar:
-Skórnir eru hannaðir til að vera fjölhæfir. Þeir eru með Cross Platform 2™ ytri sóla sem gerir skónna tilbúna í þungu lyfturnar, hröðu æfingarnar og allt að 5km hlaup.
–Breiðara svæði undir hælnum til að veita þér meiri stuðning og stöðugleika. Skórinn er hannaður til þess að þú missir sem minnstan kraft eða orku þegar þú ert að lyfta og ert að sprengja hratt í gegnum lyftuna.
–Gott grip er undir skónum fyrir stefnubreytingar.
-Skórnir eru þægilegir, mjúkir og sveigjanlegir í allri hreyfingu en á sama tíma nógu stöðugir til að lyfta og gefa þér stuðning í t.d. spretthlaupum. Hann er hannaður til að styðja fótinn þinn í að vera notaður eins og hann á að virka.
-Hliðarnar á skónum veita stuðning og hjálpa þér í t.d. kaðlaklifrum.
-Cush50™ er í sólanum á skónum sem gefur þeim góða mýkt en Cush50™ er gert úr blöndu af EVA og EPE sem gerir þá einstaklega þægilega og endingargóða.
–SuperFoam™ frá Strike Movement er einnig í skónum sem umlykur fótinn og styður við hliðar fótsins.
-Það er mikið pláss fyrir tærnar sem ýtir undir líffræðilega rétta stöðu á fætinum frekar en að ýta tánum saman og kremja þær sem margir aðrir skór gera.
-4mm hæð á hælnum hjálpar fætinum að vera í sem bestu stöðu, veitir þægindi og hjálpar við að varðveita sem mesta orku í hverju skrefi í hlaupum.