New Balance Fresh Foam X 1080v14 Garter Snake Sea Salt Karla
28.990kr. Original price was: 28.990kr..19.990kr.Current price is: 19.990kr..
New Balance hefur verið gríðarlega vinsælt síðan við byrjuðum að bjóða upp á það í fyrra en við erum loksins komin með nýja útgáfu af vinsælasta skónum, 1080. Við erum einstaklega stolt af því að geta boðið upp á mikið úrval af New Balance skóm, enda þekktir um allan heim fyrir fallega hönnun og þægilega skó. New Balance segja að ef þeir myndu aðeins mega gera einn hlaupaskó þá væri það þessi 1080 lína.
Það sem gerir 1080 einstakan að mati New Balance, er ekki bara það að þetta er besti hlaupaskór sem New Balance hefur gefið út, en hann er líka fjölhæfastur. 1080 skórinn veitir hámarksafköst fyrir allar tegundir hlaupara, hvort sem þú ert að æfa fyrir heimsmeistarakeppni, eða ert að taka síðdegishlaupatúr kringum hverfið.
Fresh Foam X 1080v14 er afrakstur stöðugra bætinga á eiginleikum þessarar línu gegnum árin. Það sem er nýtt í V14 útgáfunni er m.a. þrefalt „jacquard mesh“ efra lag með aukinni öndun á lykilsvæðum, með uppfærðum ytri sóla sem fleytir þér meira áfram í hverju skrefi en síðast en ekki síst er aukið gúmmi (e. rubber) á þeim svæðum sem mikið álag er á til þess að gera þá endingarbetri.
Ultra-modern hönnun sést vel þegar horft er á efri hluta skósins og er efnið í v14 einstaklega létt. Það er hannað til að styðja við þig og anda vel. Skórinn er með einstaklega fallega og straumlínulagaða hönnun. Hún gerir það að verkum að þú getur notað þá í hlaup eða göngutúra og líka í hversdagslegt amstri.
Fresh Foam X
Fresh Foam X er gríðarlega þægilegt og mjúkt efni sem dempar hvert einasta skref sem þú tekur. Skórnir eru hannaðir til þess að leyfa þér að fljóta áfram í hverju skrefi á náttúrulegan máta. New Balance eru stoltir af því að hafa hannað þetta einstaka efni sem þeir setja í flesta skó sem þeir hanna.
Anda vel og létt efni
Skórnir eru hannaðir til þess að anda vel með léttu efni sem styður líka við þig.
NDurance gúmmí
Tæknin í NDurance sólanum veitir alvöru endingu á þeim stöðum sem er mesta álag í hlaupum og hjálpar þér að ná meira út úr skónum.
Meðmæli frá APMA
Skórnir hafa fengið Seal of Acceptance frá American Podiatric Medical Association (APMA) sem eru samtök fótaaðgerðarlækna í Bandaríkjunum.
6mm Hæll
Fresh Foam X 1080v14 er með 6mm hæð á hælnum en afhverju skiptir það máli? „Heel Drop“ í hlaupaskóm getur haft áhrif á hvernig þú hleypur. Þeir geta breytt því hvernig hlaupastíl þú ert með og hvar álagið mun verða. Skór með lægri hæl gera þig líklegri til þess að stíga í fremri fót/miðjan fótinn (e. midfoot and forefoot strike) en þeir sem eru með hærri hæl hvetja til þess að stíga meira í hæl (e. rearfoot strike)
Starfsmenn Wodbúðar mæla sérstaklega með þessari vöru.Kíktu á tengdar vörur til þess að sjá það sem við mælum með
Öruggar greiðsluleiðir
Tengdar vörur
-
Allar Útsöluvörur Herra
New Balance Fresh Foam X 1080v14 Bláir Karla
28.990kr.Original price was: 28.990kr..19.990kr.Current price is: 19.990kr.. -
Allar Útsöluvörur Herra
New Balance Fresh Foam X More V4 Sea Salt/Blue Karla
26.990kr.Original price was: 26.990kr..14.845kr.Current price is: 14.845kr..


















