0

New Balance Fresh Foam X 1080v15 Magic Blue Karla

29.990kr.

New Balance hefur verið gríðarlega vinsælt síðan við byrjuðum að bjóða upp á vörurnar þeirra en við erum loksins komin með nýja útgáfu af vinsælasta skónum, 1080. Við erum einstaklega stolt af því að geta boðið upp á mikið úrval af New Balance skóm, enda eru þekktir um allan heim fyrir fallega hönnun og þægilega skó. New Balance segja að ef þeir myndu aðeins mega gera einn hlaupaskó þá væri það þessi 1080 lína.

Það sem gerir 1080 einstakan að mati New Balance, er ekki bara það að þetta er besti hlaupaskór sem New Balance hefur gefið út, en hann er líka fjölhæfastur. 1080 skórinn veitir hámarksafköst fyrir allar tegundir hlaupara, hvort sem þú ert að æfa fyrir heimsmeistarakeppni, eða ert að taka síðdegishlaupatúr kringum hverfið.

1080v15 – hvað er nýtt?

Fresh Foam X 1080v15 er afrakstur stöðugra bætinga á eiginleikum þessarar línu gegnum árin. Þessi nýjasta viðbót í þessari vinsælustu línu af hlaupaskóm er í raun allt sem þú þarft í hversdagshlaupaskó. Hann er með glænýrri og endurbættri hönnun á dempun/mýkt en hún endist ennþá lengur en áður. 1080v15 er enn léttari en v14 og er hann einnig með uppfært útlit. Nýjasta viðbótin í skónum er „Infinion“ en það er nýja efnið í miðsólanum sem á að minnka þetta klassíska vandamál í hlaupaskóm þar sem mýktin verður minni með tímanum. Infinion er hannað til að láta þér líða jafn vel í skónum frá fyrsta hlaupi til þess síðasta. Þeir sem þekkja til þessa skó sjá að útlitið er öðruvísi en þeir hafa breytt hönnunini á efninu að ofan sem gerir þá enn léttari með betri öndun en áður, það skemmir ekki að þeir líta enn betur út en áður. New Balance segja að þetta sé þægilegasti hlaupaskórinn frá þeim til þessa.

————————————————————————————-
————————————————————————————-

Infinion

Infinion er aðalatriðið í þessari nýjustu viðbót 1080 línunnar. Flestir hlaupaskór „pressast“ saman með tímanum og verða ekki jafn þægilegir. Hönnunin á Infinion er til þess gerð að endast enn lengur en fyrri útgáfur. Markmiðið var að fyrsta hlaupið í skónum eigi að vera eins og það seinasta.

Anda vel og létt efni

Skórnir eru endurhannaðir til þess að anda enn betur og með einstaklega léttu efni sem styður líka við þig.

Aukin mýkt og viðbragð

Mýkt, viðbragð og góð ending er það sem einkennir nýja Infinion foam botninn frá New Balance. NB hafa sett nýjan standard með þessum botni.

Nýtt útlit

Skórnir hafa fengið uppfært útlit sem felur í sér enn flottari hönnun en það snýst líka um að minnka þyngd, anda betur og sleppa öllum óþarfa.

6mm Hæll

Fresh Foam X 1080v15 er með 6mm hæð á hælnum en afhverju skiptir það máli? „Heel Drop“ í hlaupaskóm getur haft áhrif á hvernig þú hleypur. Þeir geta breytt því hvernig hlaupastíl þú ert með og hvar álagið mun verða. Skór með lægri hæl gera þig líklegri til þess að stíga í fremri fót/miðjan fótinn (e. midfoot and forefoot strike) en þeir sem eru með hærri hæl hvetja til þess að stíga meira í hæl (e. rearfoot strike) 

  Starfsmenn Wodbúðar mæla sérstaklega með þessari vöru.
————————————————————————————————————————

Kíktu á tengdar vörur til þess að sjá það sem við mælum með

File:New Balance logo.svg - Wikimedia Commons

Öruggar greiðsluleiðir

Loading...

 

 

New Balance Fresh Foam X 1080v15 Magic Blue KarlaNew Balance Fresh Foam X 1080v15 Magic Blue Karla
29.990kr.Veldu kosti
Scroll to Top
0