Grip og sveigjanleiki
Glæný hönnun og mynstur í botninum veitir þér sveigjanleika og gott grip. Ef þú ert að gera hliðarhreyfingar eins og „Euro step“, stefnubreytingar eða ert að skauta framhjá varnarmanni þá er botninn í Giannis Immortality 4 hannaður til þess að hámarka getu þína á vellinum.
Hælstuðningur
Ný hönnun kringum hælinn veitir aukinn stuðning þegar þú þarft að stoppa hratt.
Stuðningur, bætt efni og snið sem hentar flestum
Flestir sem máta Giannis Immortality línuna tala um hvað þeir umlykja fótinn vel. Það var bætt efnið í skónum fyrir betri endingu og halda þeir ennþá betur við en áður. Sniðið hentar flestum, þeir eru ekki of breiðir og ekki of grannir.
Stjórnaðu hreyfingum þínum
Innra kerfi skósins er hannað til að halda þér á þínum stað í hröðum hreyfingum.
















