31.990kr.
Zoom Fly 6 styður við þig í hverju skrefi hlaupsins. Léttari en Zoom fly 5, með gríðarlega góðu viðbragði frá ZoomX foam en efnið heldur í stóran hluta orkunnar í hverju skrefi. Á sama tíma er carbon-fibre plata sem fleytir þér áfram í átt að endalínunni. Þetta er tilvaldir hlaupaskór í hraðari götuhlaup – léttir, hraðir með góðu viðbragði og þægindum.
ZoomX Foam í miðsóla sem mjúkt en einnig með gríðarlega gott viðbragð. Þetta er sá botn frá Nike sem varðveitir mestu orkuna í hverju skrefi. ZoomX er létt efni sem leyfir þér að nýta orkuna úr einu skrefi í það næsta. ZoomX er léttara, mýkra og með meira viðbragð en nokkuð annað Nike efni. ZoomX sótti innblástur úr foam efni sem er oft notað í „aerospace innovation“. ZoomX er léttasta efnið frá Nike, sem þýðir mikil mýkt án þess að þyngja skóinn. Nike segja að ZoomX miðsólinn varðveiti allt að 85% orku sem leyfir þér því að hlaupa lengra, hraðar. Fyrsti skórinn sem ZoomX var sett í var Nike Zoom Vaporfly 4% sem Eliud Kipchoge hljóp maraþon á 2:00:25 í Breaking2 maraþoninu.
Zoom Fly eru þekktir fyrir að vera með Carbon plötu í skónum en það hjálpar þér að ná enn meiri hraða og betri orkunýtingu í hverju skrefi. Carbon platan fleytir þér áfram í hverju skrefi. Þetta gerir þá einstaklega góða í hraðari hlaup og keppnir.
Zoom Fly er með 8mm hæð á hælnum en afhverju skiptir það máli? „Heel Drop“ í hlaupaskóm getur haft áhrif á hvernig þú hleypur. Þeir geta breytt því hvernig hlaupastíl þú ert með og hvar álagið mun v
Myndband frá RunRepeat.com
Nike Zoom Fly 6 Svartir Kvenna