| Stærð | 35.5, 36, 36.5, 37.5, 38, 38.5, 39, 40, 40.5, 41, 42, 42.5, 43 |
|---|
Nike Metcon 10 Orange Pulse Kvenna
30.990kr.
Nýjasta viðbótin í Metcon línunni er mætt og er þetta tíundi í röðinni. Hann tekur alla góðu eiginleika Metcon 9 og gerir þá betri. Hyperlift platan kemur aftur en núna í bland við ReactX efni sem gefur aukið viðbragð. Skórnir eru léttari en áður og auka orkusparnað. Metcon línan hefur lengi verið ein af mest notuðu skóm íþróttafólks í Crossfit og þeim sem stunda alhliða æfingar .
Stöðugri og breiðari
Nike hannaði nýjustu Metcon skónna með Hyperlift plötu í hælnum sem var einnig í Metcon 9. Tásvæðið er breiðara en í Metcon 9 og gerir það þér kleyft að fá betri stöðugleika með því að tærnar séu ekki kramdar saman. Þeir eru nokkuð stífir í hælnum en þessi stífleiki gefur þér góða tengingu við jörðina,stuðning og stöðugleika í öllum æfingum, sérstaklega í þyngri lyftum.
Meiri hreyfanleiki
Nike uppfærði miðsólann með léttu ReactX efni til að auka viðbragð og orkusparnað.ReactX er sameinað sveigjanlegum röndum á ytri sóla sem veita aukna dempun þegar þú framkvæmir æfingar með mikilli ákefð eins og hopp eða stutta hraða spretti.
Farðu alla leið
Á hliðinni er gúmmí sem styður við þig en er einnig gert til þess að gefa þér gott grip í kaðlaklifri. Áður fyrr þegar fólk æfði t.d. Crossfit og var að gera kaðlaklifur í hlaupaskóm þá byrjaði botninn að detta af á hliðinni vegna álags, þetta efni í Metcons gerir það að verkum að þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af endingunni á efninu þótt þú takir kaðlaklifur á hverri einustu æfingu. Ný hönnun á gripinu undir skónum veitir einstaklega gott grip, þótt þú sért á sveittu gólfi í erfiðri æfingu.
Endingargóðir og anda vel
Létt og sterkt efni sem vandar vel. Þetta efni er sterkara en í fyrri týpum og ættu skórnir að geta tekið á móti öllu sem er hent í þá. Hvort sem þú ert að gera kaðlaklifur, lyfta, hlaupa eða hoppa, þá geta Metcons tæklað það.
Lock-in kerfi
Hönnun kringum fótinn festir hann í skónum á þægilegan máta svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að skórinn hreyfist mikið til. Þetta lock-in kerfi í bland við stíft efni aftan í hæl, ökkla og reimakerfi sem aðlagast þínum fæti gerir æfinguna enn þægilegri en áður.
Stífir að utan, mjúkir að innan
Tvöfalt lag í sólanum – Stífari að utan, mýkri að innan – Það gerir það að verkum að þú ert með mýkt í hreyfingum en á sama tíma stöðugleika.
Öruggar greiðsluleiðir
Tengdar vörur
-
Allar Útsöluvörur Dömu
Nike Dri Fit Swoosh Run 1 4 Zip Midlayer svört Kvenna
9.990kr.Original price was: 9.990kr..3.990kr.Current price is: 3.990kr.. -
Allar Útsöluvörur Dömu
Nike Everyday Training Ankle Socks – Svartir
3.990kr.Original price was: 3.990kr..1.995kr.Current price is: 1.995kr..





















