24.990kr.
FuelCell Rebel V5 er hannaður til að vera hraður en útlitið gefur það einnig til kynna. Hann er með straumlínulagað efra lag sem sækir innblástur sinn í kapphlaup. Ný hönnun á miðsólanum er víðari og veitir enn meiri stöðugleika í hverju skrefi. Ótrúlega léttur, með FuelCell tækni í miðsóla sem er blanda af PEBA og EVA svampefnum. Fuelcell veitir þér ótrúlegt viðbragð í hverju skrefi. Stöðug þægileg og hröð skref fyrir þá sem vilja komast lengra, hraðar.
———————————————————————————————————-
‘The FuelCell Rebel is a fan favorite and one of the most versatile shoes we build. It’s lightweight for up-tempo runs, with an energetic midsole that balances high-energy return and cushioning with security for daily mileage.’
– Chris Morfesi, Senior Product Manager of Performance Running
FuelCell Foam efnið veitir hámarksdrifkraft og hjálpar að ýta þér áfram í hverju skrefi. Það er enn meira efni í botninum en áður. Ný PEBA/EVA efnisblanda sem veitir hærri og víðari grunn í skónum úr léttu mjúku efni, á sama tíma og hönnunin heldur áfram að byggja á því að hjálpa þér að skjótast áfram í hverju skrefi.
Fuel Cell Rebel v4 er með 6mm hæð á hælnum en hverju skiptir það? „Heel Drop“ í hlaupaskóm getur haft áhrif á hvernig þú hleypur. Þeir geta breytt því hvernig hlaupastíl þú ert með og hvar álagið mun verða. Skór með lægri hæl gera þig líklegri til þess að stíga í fremri fót/miðjan fótinn (e. midfoot and forefoot strike) en þeir sem eru með hærri hæl hvetja til þess að stíga meira í hæl (e. rearfoot strike)
Endurhannað og meira gúmmí í ytri sóla sem endist betur og er með meira gripi.
Engir óþarfa auka saumar eru í yfirbyggingu sem gerir sniðið einstaklega aðsniðið og þægilegt. Gervi- og mesh efnið er einstaklega endingargott.
Miðsólinn er breiðari en fyrri útgáfan og nær hærra.
———————————————————————————————————-
Kíktu á tengdar vörur til þess að sjá það sem við mælum með
New Balance FuelCell Rebel v5 Angora Earth Shadow Kvenna