0

Reebok Nano X5 Edge Svartir og Brúnir Unisex

24.990kr.

Nano línan er 15 ára en þessi útgáfa tekur allt það besta sem Reebok hefur þróað gegnum árin og sameinar það í einn skó, Nano X5 Edge.

 

Edge línan er með nýju endurbættu Flexweave efni, en það er endingarbesta efnið frá Reebok til þessa. Klassískur DualResponsive miðsóli í bland við nýja efnið veitir þér einstaklega góðan stuðning í gegnum æfinguna. 

Nano X5 Edge er mættir en Reebok fagnar 15 ára afmæli þessarar línu með glænýjum og hreint út sagt mögnuðum skóm. Reebok vildi gera nýjasta Nano skóinn þann þægilegasta sem þeir hafa gert. Nano X5 er með dual-density miðsóla sem er svæðaskiptur og veitir stífari stuðning að aftan fyrir stöðugleika í lyftingum en meira viðbragð og mýkt að framan fyrir hlaup eða hopp. Mjúkur en stuðningsmikill „kragi“ heldur utan um fótinn þinn og læsir hann á sínum stað. Metasplit ytri sóli gerir hlaupin ennþá þægilegri en áður.

Nano X5 Edge: Þróun og  bæting á einum vinsælasta æfingaskó heims

Nano X5 hafa þróast mikið yfir þessi 15 ár en þeir eru hannaðir fyrir allar æfingar, frá cross-training yfir í dynmaic cardio yfir í metabolic conditioning og lyftingar. Þessi skór er glæsilegur á allan máta. Hann er með léttbyggða hönnun sem andar vel en hún veitir fullkomið jafnvægi milli þæginda, stöðugleika og sveigjanleika til þess að hjálpa þér að hreyfa þig á sem bestan máta.

Hvernig eru Nano X5 Edge öðruvísi en Nano X4?

Nano X5 æfingaskór eru með byltingarkenndum nýjum miðsólasvampi sem veitir enn meiri þægindi og stuðning þar sem þess er þörf. Tvíþættur EVA svampur býður upp á mýkri framfótarstuðning fyrir hopp og stöðugri hælstuðning fyrir lyftingar. Tvær gerðir þéttu af svampefni er á tveimur stöðum en þeir veita þér markvissan stuðning og mikið viðbragð í æfingum sem krefjast sprengikrafts.

Reebok bættu einnig slitsterka gúmmísólann sem gerir hann sveigjanlegri en áður. Aðskilinn MetaSplit sóli skiptir gúmmíinu milli tábergs og miðfótar til að veita meiri sveigjanleika í fremri fæti fyrir hlaup og aðrar sprengikraftsæfingar.

Að lokum, fyrir bætt þægindi, eru Nano X5 skórnir með nýjum mótuðum ökklakraga með bólstrun sem hjálpar til við að halda fætinum á sínum stað án þess að valda núningi eða renna til. Þessi mjúki bólstrun veitir þér öruggan og þægilegan stuðning.

Stöðugir, endingargóðir og anda vel.

Eins og fyrri Nano módel hefur Nano X5 Edge endingargóðan gúmmísóla sem veitir öruggt grip á gólfinu. Heel clip tryggir stöðugleika fyrir hliðarhreyfingar og kraftlyftingar með því að halda fætinum tryggilega á sínum stað. Sérstaka Lift and Run kerfið í hælnum býður upp á stöðugan hælstuðning fyrir lyftingar og aukna bólstrun fyrir spretthlaup. Endingargott og létt Flexweave efni andar einstaklega vel en það hjálpar  til við að halda fótunum þægilega svölum.

Hvort sem þú ert að takast á við krefjandi WOD eða skreppa í ræktina, þá aðlagar Nano X5 Edge sig að öllum áskorunum og tryggir að þú getur einbeitt þér að þínum markmiðum. Tilbúinn fyrir allar erfiðar æfingar, Nano X5 er hannaður fyrir þá sem sætta sig ekki við minna. Með nýjustu tækni og fágaðri hönnun býður hann upp á æfingaskó sem sameinar framúrskarandi virkni og stílhreint útlit.

—————————————————————————————————————-

Dualresponsive Eva miðsóli

Miðsólinn er með svæðaskipt „durometer foam“ sem veitir einstaka mýkt heilt yfir en samt mikið viðbragð í fremri fæti. Á sama tíma er skórinn stífari og stöðugri að aftan.

Hágæða stuðningur allan hringinn

Performance Comfort Collar veitir 360 gráðu stuðning sem læsir fótinn þinn á sínum stað sem veitir þér þægindi og stuðning allan daginn.

Hækkun í hæl

7mm hækkun í hæl veitir aukin ökklaliðleika.

Hágæða Flexweave® efni

Ofurlétt hágæða Flexweave® efni í efri hluta skósins veitir einstaklega létta yfirbyggingu sem styður vel við þig. Efni sem andar einstaklega vel og heldur fótunum þínum þægilegum á æfingun.

Stuðningur

Reimarnar halda vel við fótinn og styður skórinn við þig á hliðunum fyrir stöðugleika.

Breiðir og anda vel

Skórnir eru breiðir og gefa þér nóg pláss fyrir tærnar. Margir skór í dag eru of þröngir fyrir fæturna okkar. 

“Nano X5 celebrates Reebok’s continued commitment to innovation, championing the athlete and creating the best training shoe on the market. In creating the Nano X5, we looked to our legacy in training and listened to our valued customer’s feedback to create the most comfortable Nano of all time, without compromising performance.”

-Tal Short, Reebok Product Director

—————————————————————————————————————-

Eiginleikar:

  • 7 mm hækkun í hæl sem veitir ökklaliðleika
  • Dualresponsive miðsóli
  • Performance Comfort Collar veitir 360 gráðu stuðning
  • Anda vel hágæða Flexweave efni.
  • Ofurlétt og endingargott Flexweave® efni
  • Fallegt retro Reebok merki.
  • Breiðir og gefa þér nóg pláss

—————————————————————————————————————-

Reebok – Logos Download

Vörunúmer: 100244425 Vöruflokkar: , , , , , Tagg: Brand:

Öruggar greiðsluleiðir

Loading...
Stærð

, , , , , , , , , , , , , ,

Þér gæti einnig líkað við…

Auka 10% afsláttur af útsöluverði
X
Reebok Nano X5 Edge Svartir og Brúnir UnisexReebok Nano X5 Edge Svartir og Brúnir Unisex
24.990kr.Veldu kosti
Scroll to Top
0