| Stærð |
|---|
Velites All Terrain Hand Grips Black (Fylgir með Anti Odor poki og úlnliðsbönd)
10.990kr.
Velites er glænýtt merki hjá okkur og sérhæfa sig í hágæða aukahlutum fyrir Crossfit. All Terrain eru nýjar fimleikaólar frá þeim hannaðar fyrir öll yfirborð með gríðarlega góðu gripi. Þær bjóða upp á gott jafnvægi milli teygjanleika, þæginda og verndar. Einnig fylgja með úlnliðsbönd sem er þægilegt að hafa undir fimleikaólunum. Quad Ultra koma með Velites Anti Odor Fimleikaólapoka sem er hægt að skoða með því að ýta á nafnið <<<<—-
Ath. nánast enginn tekur M og sakar það ekki að taka stærri frekar en minni. Við mælum með að taka L eða XL eftir handastærð.
————————————————————————————————————————
Ekkert kalk, betra grip, fleiri endurtekningar!
Hannaðar með ekkert kalk í huga og hámarksgrip. Þessi einstaka hönnun hjálpar þér að límast við stöngina og verndar úlnliðina þína á sama tíma hjálpa þær við að minnka álag á framhandleggina þína.
Hannað fyrir öll yfirborð
Þessar nýju All Terrain ólar eru hannaðar til þess að ná sem bestu gripi á öllum yfirborðum sem gerir þær frábærar bæði fyrir sléttar stangir og þær sem eru með grip. Þær eru með sérhönnuðu 2.1 mm efni sem er einstaklega sterkt sem gerir þær einstaklega þægilegar í flestum æfingum hvort sem það er muscle up í hringjum eða ketilbjöllusveiflur.
Ótrúleg þægindi og ending
Styrkt með hátæknilegu efni en á sama tíma ótrúlega þægilegar.
Gleymdu kalkinu og bættu tímann þinn á æfingu
Minnkaðu óþarfa kalkpásur og bættu tímann þinn á æfingum
Minnkaðu framhandleggsálag
Fullkomið fyrir lengri æfingar með æfingum eins og tær í slá, upphýfingum og muscle-ups.
Verndaðu hendurnar og úlnliðina
Sameinaðu All Terrain ólarnar við Velites úlnliðsböndin sem fylgja með í kassanum fyrir hámarksþægindi og afköst. Verndaðu húðina kringum úlnliðinn til þess að nýta þér All Terrain ólarnar til hins ýtrasta svo þú getir einbeitt þér að næstu endurtekningu.
Sterkur netapoki með klemmu
Með ólunum fylgir sterkur netapoki með klemmu til þess að hengja utan á töskuna þína en það gerir það að verkum að það loftar um ólarnar og minnkar líkur á vondri lykt.
Vegan
Ólarnar eru gerðar úr 100% vegan efni.
————————————————————————————————————————
- Nýtt 2.1 mm efni með einstaklega góðu „All Terrain“ gripi
- Grípur einstaklega vel í stöngina
- Koma í fallegum og stílhreinum kassa
- Fylgir með sérstakur Velites Hand grip poki með krók
- Frábær vernd fyrir lófann
- Virkar á öll yfirborð (stangir, ketilbjöllur, róður)
- Engar holur (e. no hole) sem gerir þér kleift að skipta hraðar milli æfinga.
- Úlnliðsbönd fylgja frítt með sem vernda úlnliðinn frá núning.
- 100% Vegan efni
Starfsmenn Wodbúðar mæla sérstaklega með þessari vöru.
Kíktu á tengdar vörur hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri vörur frá Velites sem við mælum með
Öruggar greiðsluleiðir
Tengdar vörur
-
Gripvarnir
Velites CrossFit® Quad Competition Fimleikaólar Hvítar (fylgja með úlnliðsbönd)
10.990kr. -
Gripvarnir
Velites Úlnliðsbönd Neon Vikupakki (7 pör)
10.990kr.Original price was: 10.990kr..9.990kr.Current price is: 9.990kr..





















