| Stærð |
|---|
Velites CrossFit® Quad Competition Fimleikaólar Hvítar (fylgja með úlnliðsbönd)
10.990kr.
Velites er eitt vinsælasta merki hjá okkur en þeir sérhæfa sig í hágæða aukahlutum fyrir Crossfit. CrossFit® Quad Competition eru þægilegar fimleikaólar með góðu gripi frá spænska merkinu Velites. Þær bjóða upp á gott jafnvægi milli teygjanleika, þæginda og verndar. Einnig fylgir með úlnliðsbönd sem er þægilegt að hafa undir fimleikaólunum og poka sem er hægt að geyma þau í.
Ath. nánast enginn tekur M og sakar það ekki að taka stærri frekar en minni. Við mælum með að taka L eða XL eftir handastærð.
————————————————————————————————————————
Hannað fyrir keppni
CrossFit® Quad Competition ólarnar eru fullkomnar fyrir upphýfingarslána, viðar eða stálhringi, lyftingarstöngina eða ketilbjölluna. Þær eru „officially approved for the Crossfit Games“ og ætti því að mega nota í öllum öðrum keppnum tengt Crossfit.
Engin göt (e. no hole) = Hraði
Hraðari skiptingar milli æfinga með því að sleppa óþarfa götum þar sem hver sekúnda skiptir máli.
Víðari hönnun
Víðari hönnun veitir enn meiri vernd og minnkar líkur á að þú rifnir á æfingu en það hjálpar líka við að þú náir að nýta meira kraftana þína á æfingunni.
Minnkaðu framhandleggsálag
Fullkomið fyrir lengri æfingar með æfingum eins og tær í slá, upphýfingum og muscle-ups.
Verndaðu hendurnar og úlnliðina
Sameinaðu CrossFit® Quad Competition við Velites úlnliðsböndin sem fylgja með í kassanum fyrir hámarksþægindi og afköst. Verndaðu húðina kringum úlnliðinn til þess að nýta þér CrossFit® Quad Competition til hins ýtrasta svo þú getir einbeitt þér að næstu endurtekningu.
Endingargóðar
Gerðar úr 1.9 mm hágæða microfiber efni sem tryggir mjúka viðkomu, þægilegt og endingargott grip.
Kalk
Virka með kalki og eru hannaðar þannig. Henta bæði þeim sem keppa en líka þeim sem einungis æfa.
————————————————————————————————————————
- Grípur vel í stöngina
- Koma í fallegum og stílhreinum kassa
- Frábær vernd fyrir lófann
- Virkar á öll yfirborð (stangir, ketilbjöllur, róður)
- Engar holur (e. no hole) sem gerir þér kleift að skipta hraðar milli æfinga.
- Tvö lög af mjúku microfiber efni sem tryggir mýkt og þægindi en einnig frábært grip.
- Úlnliðsbönd fylgja frítt með sem vernda úlnliðinn frá núning.
- Poki fylgir
Öruggar greiðsluleiðir
Tengdar vörur
-
Allar Útsöluvörur Herra
Victory Grips Apex V-series 3 Finger Kvenna
11.990kr.Original price was: 11.990kr..8.393kr.Current price is: 8.393kr..




















